|
|
02.10.2008 13:53:19 / siggamh
Hæ vitið þið nú get ég farið að blogga smá, get farið í tölvu í vinnunni í smátíma. Geggjað  . En hvað er að frétta mar heyrir ekkert í neinum?  . Ég er farin að vinna í leikskólanum Hamravellir í Hafnarfirði, ótrúlega gaman. Er að vinna í Birkikoti þar sem eru 1-2 ára börn. þarf að hætta.
»
17.08.2008 21:29:06 / siggamh
Ég er búin að vera heima hjá mömmu og pabba í viku núna. Fékk smá sumarfrí. Ég fékk vinnu hjá heilsuleikskólanum upp á velli/keili. Þannig að ég hætti strax hjá IGS, var svo ánægð að geta hætt, þetta var óþolandi vinna. Líka slæmur mórall. Fékk ekkert svar frá Grunnskólanum, er búin að hringja og allskonar en alltaf sagt að bíða. Þannig að ég byrja bara að vinna í leikskólanum um 20 ágúst. En núna er ég að reyna komast heim á frímiða, það gengur ekki nógu vel. Ætlaði að fara kl 2 í dag en allt fullbókað. Þannig að ég þarf að reyna aftur í fyrramálið. Ég fór í bílabíó í gærkvöldi í fyrsta sinn. Það var verið að sýna myndina Stella í Orlofi, þetta var í tilefni af ástarvikunni sem var núna, voða gaman.  . Svosem ekkert mikið að frétta af mér. Vinkona mín Iðunn var að skíra son sinn í gær, hann var skírður Björn Daníel voða flott  . Iðunn gangi þér vel með allt sem framundan er. Og já þarf að fara kíkja á þig Ásdís, þetta gengur ekki. Ertu búin að gera eikkað sniðugt af þér í sumar?. Sakna ykkar allra sem eru ekki hjá mér daglega  . Svo ætla ég að reyna byrja aftur í boxi, held það byrji eftir ca 2 vikur, vona að Sunna komi með. Fer soldið eftir bara hvenær það er, er örugglega að vinna til 4 eða 5 veit ekki alle. En tala við ykkur seinna nenni ekki að skrifa meira. Hafið það sem allra best  .
»
22.05.2008 20:45:54 / siggamh
Hæ hæ vá já það er soldið síðan síðast. Kemst aldrei á þetta blessaða net. Er náttla byrjuð að vinna á fullu hjá igs að þrífa flugvélarnar. Er ekki alle að fíla þetta, en fínt kaup svosem. Ætla allavega að vinna einn mánuð í viðbót svo ég fái frímiða útí lönd. Er að fara núna um mánaðarmótin að hitta bekkjarfélagana mína úr grunnskólanum það verður vonandi gaman. Er bæði spennt og kvíðinn fyrir því  . Þannig að mar þarf að fara gera sig sæta.  Er búin að taka mér viku pásu í boxi, þarf að drífa mig að halda áfram.  . Veit ekki hva ég á að segja meira. Ég heyri bara í ykkur.
»
26.03.2008 15:12:16 / siggamh
Hva segist? engin búin að commenta lélegt mar. Eruð þið búin að skila skattframtalinu? Ég var að klára það núna, gerði það alein, voða klár  Mamma var að koma frá útlöndum og hún gaf mér ipod og svartar fínar buxur geggjað  . Jæja núna fer ég örugglega í þjálfun fyrir vinnuna um helgina fæ ekki passann fyrren á föstudaginn. Vá ég gleymdi alveg að skrá mig á atvinnuleysisbæturnar útaf páskunum, ruglaðist alveg. En það reddaðist alveg sem betur fer.  . Ég hélt smá páskakökuboð fyrir vini mína á páskadag og það var geggjað. Bakaði 3 kökur og 2 heit rúllutertubrauð og fullt af öli. Mjög gott. Svo var ég með tónlist og sýndi öllum allar myndirnar mínar.  . Voða gaman. En nenni ekki að skrifa meir í bili. Heyri í ykkur seinna bæjó.
»
05.03.2008 16:05:50 / siggamh
Hæhæ ég ákvað að skila þessum aloe vera kúr, gat ekki byrjað aftur. Fæ þá bara endurgreitt. Fæ matarprógramm hjá Ágústi boxþjálfara í kvöld, ætla að fara bara eftir því  . Þið verðið nú að láta í ykkur heyra. Hvað er að gerast hjá ykkur? Vá var að tala við leigusalann minn og hún ætlar að athuga hvort það sé einhver möguleiki á að ég geti fengið netið inn til mín. Það væri alveg æðislegt. Vitið þið haldiði að sjónvarpið mitt hafi ekki bara dáið í gær. Það er náttla orðið gamalt, fermingarsjónvarpið mitt.  . Ég er samt ekkert gömul bara tvíið  . Þannig að ég ligg bara í tölvunni hennar mömmu þessa dagana. Þarf samt að drífa mig að redda sjónvarpi þetta gengur ekki.  . En tala við ykkur seinna bæjó 
»
28.02.2008 01:26:09 / siggamh
Hæhæ. Ég hef nú ekki mikið að segja. En ég er búin að vera á fullu í boxi. En svo er málið ég er að fá beinhimnubólgu framaná fótunum semsagt, það er geggjað vont. Er að spá í að fara ekki í box á föstudaginn svo ég geti jafnað mig.  . Vá ég prufaði að byrja á þessum aloe vera kúr og það er ógeðslegt. Veit ekki hvort ég prufi aftur sjáum til. Þá geri ég þetta bara á minn hátt. En jæja svo er ásta vinkona að koma um helgina, förum örugglega að gera eikkað á laugardaginn, en þá ætlaði ég í miðnæturbox hlakkaði geggjað til. En víst að ég er svona slæm í fótunum þá er betra að hvíla sig aðeins.  En hlakkar til að vera með ástu  . Verð að fara núna, heyrumst síðar
»
12.02.2008 20:34:07 / siggamh
Jæja þá erum við búnar að fara á Akureyri og það var mjög gaman. Ég og Elsa byrjuðum á því að vakna um 7 leytið og brunuðum á flugvöllinnn í reykjavík. Þar flugum við til akureyrar um hálf tíu leytið. Þegar við komum á akureyri þá var farið beint á gistiheimilið með töskurnar og fórum strax í skíðafötinn. Drifum okkur síðan í rútuna og fórum upp í Hlíðarfjallið. Vorum komin þangað um 12 leytið, þurftum að bíða svo lengi eftir einhverjum krökkum. En fórum síðan í stólalyftuna og vorum á skíðum til hálf 4 en þá þurfti að loka vegna veðurs, því miður. En þá fórum við á gistiheimilið að chilla. Svo kom Þórhallur bróðir minn í heimsókn sem var mjög gaman. Langt síðan ég hitti hann síðast. . En svo um 7 leytið um kvöldið fórum við á kaffi akureyri að hitta alla hina. Og í vélsmiðjuna að borða. Ætluðum að fara á geggjað fyllerí en svo nenntum við því ekki. Fórum bara upp á gistiheimili og skemmtum okkur vel saman þar. . Á Sunnudeginum skutlaði Þórhallur bróðir okkur á flugvöllin snemma og leigðum okkur bíl. Svo rúntuðum við, fundum varla mat handa okkur fyrir tólf. Fórum loks bara á sjoppu nentum ekki að bíða lengur. Ætluðum að fara á stað sem er hægt að fá almennilegan morgunmat. R+untuðum meira, fórum upp á hlíðarfjall en það var lokað, okkur grunaði það svosem. Fórum þá á flugvöllinn og létum flýta fluginu okkur til 4, annars áttum við að fara heim kl 19:20. Nentum ekki að bíða höfðum ekkert að gera. Fórum og fengum okkur brynjuís, heimalagaðan ís, hann var ágætur. 'Akváðum svo að fara á skauta í skautahöllinni í klukkutíma. Mjög gaman, samt soldið langt síðan síðast þannig mar var ekkert svaka góður. . En loksins fórum við heim, lentum í sama flugi og laddi bróðir mjög sniðugt. Ég skutlaði síðan Elsu heim og sótti Hugó sæta. Fórum síðan heim og lágum í leti. En þetta var mjög mjög gaman. Það er líka alltaf hægt að skemmta sér með Elsu frænku En heyri í ykkur seinna.
»
02.02.2008 18:38:21 / siggamh
Hæhæ loksins komst ég á netið aftur. Er búin að reyna að finna mér vinnu sem gengur erfiðlega, því miður. Svo var ég alveg brjáluð á föstudaginn átti náttla að fá pening frá atvinnuleysisbótunum en fékk ekkert og gat ekki hringt í þau því það var búið að loka. Fock mar. En verð að hringja á mánudaginn og reyna að vera róleg. Ég þoli ekki þegar fólk bara gleymir mér.  Mér gengur vel í boxinu, það er líka svo gaman. En í kvöld er ég að fara út að borða með elsu frænku og í bíó, voða gaman. Hey svo er skíðaferðin til akureyrar næstu helgi, var að fatta það núna. Stutt í það og mig hlakkar geggjað til.  . Við ætlum líka að skella okkur í ljós á mánudaginn, reyna vera fínar fyrir ferðina. En jæja heyri í ykkur seinna, verð að drífa mig.
»
23.01.2008 01:02:49 / siggamh
Það var víst ekki flogið í dag. Þannig að ég fór á ísafjörð til að skutla svövu og steina hingað og þangað, þau þurtfu að skutla allskonar dóti sem þau fengu lánað fyrir veisluna. En nú ætla ég að fara heim á morgun. Þarf að fara í atvinnuviðtal upp á svæðisvinnumiðlun í keflavík. Þau eru að bjóða mér vinnu, veit ekki hvað það er einu sinni. Svo þarf ég að fara í box á morgun með sunnu veit ekki hvort ég geti hitt elsu vona það. En svo er ég að fara í annað atvinnuviðtal á macdonalds ´bænum á fimmtudaginn kl 3. Vonandi verður svo eikkað úr þessu. Annars þarf ég að halda áfram að sækja um sem er hundleiðinlegt. En verð að fara sofa vakna snemma á morgun, athugun í flug um 9 leytið. Góða nótt, heyri í ykkur seinna.
»
22.01.2008 01:15:09 / siggamh
Vá hvað var alle frábært afmælið hjá svövu systir. Við mættum í Salem sem er hvítasunnukirkjan á ísafirði kl 19:00, veislan var þar. Þar fengum við fiskisúpu og rauða linsusúpu mjög góðar og brauð með. Síðan skáluðum við í hvítvíni og afi hélt smá ræðu, mjög fína  . Eftir það fengum við kaffi og kökur, fengum rommkúlutertu og dísudraum uppáhalds kökuna mína  . Svo var spjallað saman og síðan fóru flestir niður í kapelluna að hlusta á steina kærasta svövu spila á píanóið, mjög flott. Síðan um held ég 10 leytið fór fjölskyldan að hjálpa við að taka til. En alveg æðislegt. Jæja þá er að reyna koma sér heim á morgun og hugó. Vona að það verði flogið. Verð að fara að redda mér vinnu þetta gengur ekki. Jibbý ég er að fara með elsu frænku í skíðaferð til akureyrar 9. feb erum búnar að panta. Það verður geggjað stuð mar, er geggjað spennt. Það er rúta til og frá flugvellinum, gistiheimili 2 nætur, einn kvöldmatur, partý, inná skíðasvæðið á 14000 kr það finnst mér ekki dýrt fyrir svona ferð. En verð að fara sofa heyri í ykkur seinna. Sakna ykkar líka elsa,dimma og perla.
»
20.01.2008 23:21:30 / siggamh
»
15.01.2008 22:59:52 / siggamh
Hæ hæ ég er búin að fá mér hund. Silky Terrier, rosalega góður og sætur. Hann er 7 mánaða, fékk hann svona gamlan það er bara fínt. Hann heitir Hugo. Þarf að reyna halda áfram að ala hann upp vona að það gangi vel. Ætla reyna fara með hann fljúgandi vestur á fimmtudaginn, er að fara í afmæli til systur minnar. Svo fór ég á kynningu til Auðar vinkonu minnar í reykjavík. Hún var að kynna Aloe vera. Hún var að segja líka frá Aloe Vera megrunarkúr, þannig að þú léttist um 5-7 kíló á 9 dögum. Ef þið eruð game þá get ég gefið ykkur númer hjá elsu frænku. Geggjað kúl Heyrumst síðar.






Ein mynd af Elsu fyrir Ástu
»
10.01.2008 17:45:43 / siggamh
Þá er ég komin heim, það er nú alltaf voða gott. Það er voða fínt að koma á bókasafnið og nota tölvuna hér, þarf að vera duglegri við það.  . Fæ það nefnilega frítt. Er búin að vera á fullu að leita mér að vinna, hefur gengið ágætlega nú er bara að bíða eftir svari. Ætla nú samt að halda áfram. En verð að hætta núna heri í ykkur seinna.
»
05.01.2008 18:43:06 / siggamh
Þá er bara jólin og áramótin búin. Það er ágætt, fara lifa eðlilega búin að vera fara sofa seint og vakna seint eða snemma soldið vont. En fer heim á þriðjudaginn, ætla að reyna að halda síðunni gangandi er náttla ekki með netið heima hjá mér, en vona að þetta gangi upp. Verð að fara núna. heyri í ykkur seinna.
»
03.01.2008 17:45:40 / siggamh
Hæ nú er ég að fara heim til mín á þriðjudaginn, alltaf gott að fara heim til sín. Er búin að hafa það gott hérna hjá foreldrum. Hlakka til að fara heim og fara á rúntin. Var náttla að kaupa mér nýjan bíl og varla búin að nota hann. Svo er að fara leita sér að annarri vinnu. En heyri í ykkur seinna. En endilega skrifið í gestabókina
»
Síður: 1 2
|
|